Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2021Borgarráð samþykkti á fundi sínum 7. janúar 2021 útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2021. Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 27. janúar, 3. mars, 14. apríl, 5. maí og 2. júní. Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs, þ.e. í skuldabréfaflokkum RVK 32 1, RVKG 48 1 (verðtryggðir) og í skuldabréfalokkum RVKN 35 1 og RVKNG 40 1 (óverðtryggðir). Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 er gert ráð fyrir að borgarsjóður taki lán vegna framkvæmda og reksturs á árinu 2021 fyrir allt að 34.400 mkr. Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Nánari upplýsingar gefur: Halldóra Káradóttir Sviðsstjóri Fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 Netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is
|