English Icelandic
Birt: 2020-12-16 18:10:47 CET
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf. lýkur víxlaútboði

Kvika banki hf. hefur lokið útboði á þriggja, sex og níu mánaða víxlum í nýjum víxlaflokkum. Í heildina bárust tilboð að fjárhæð 2.320 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 600 milljónir í KVB 21 0322 á 1,20% flötum vöxtum, 600 milljónir í KVB 21 0621 á 1,60% flötum vöxtum og 820 milljónir í KVB 21 0921 á 1,80% flötum vöxtum. Áætlað er að taka víxlana til viðskipta á Nasdaq Ísland í næstu viku.