Icelandic
Birt: 2020-12-16 17:43:31 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 16. desember 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 18. desember 2020.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 6.519.000.000 á bilinu 1,40% - 1,53%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.406.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,46%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 76.058.252.565 en er nú ISK 78.464.252.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 2.020.000.000 á bilinu 1,70% - 1,78%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 420.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,70%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 24.471.000.000 en er nú ISK 24.891.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is