Icelandic
Birt: 2020-12-09 09:31:46 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 8. desember 2020

Lykill fjármögnun hf. hefur lokið útboði á 6 og 12 mánaða víxlum í nýjum flokkum, LYKILL210615 og LYKILL211215.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 2.440 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.738m.kr.

Í flokkinn LYKILL210615 bárust tilboð að nafnvirði 1.820 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.738 m.kr. á 1,65% flötum vöxtum.

Í flokkinn LYKILL211215 bárust tilboð að nafnvirði 620 m.kr. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. desember 2020. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útgáfu og sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 444 6910
Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 515 2000