Icelandic
Birt: 2020-12-04 10:00:00 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg – Útboð á nýjum grænum skuldabréfaflokk RVKNG 40 1

Reykjavíkurborg efnir til fyrsta útboðs á nýjum grænum skuldabréfaflokki RVKNG 40 1 miðvikudaginn 9. desember. Tilgangurinn útgáfunnar er að fjármagna græn fjárfestingarverkefni í samræmi við græna umgjörð Reykjavíkurborgar. Útgáfan er í samræmi við útgáfuáætlun 2020 en heimild til lántöku á árinu er 10.000 m.kr.  Búið er að taka lán á árinu 2020 fyrir 5.700 m.kr. og er því ónýtt heimild 4.300 m.kr.

RVKNG 40 1 ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á 12 mánaða fresti með lokagjalddaga 21. ágúst 2040. Fyrirhugað er að viðskiptavakt hefjist með skuldabréfaflokkinn á fyrrihluta ársins 2021.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákvarða fjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudagurinn 15. desember.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu og kynna það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Fjárfestar skulu skila inn tilboðum fyrir klukkan 16:00 miðvikudaginn 9. desember 2020 á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Nánari upplýsingar veita:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272

Gunnar S. Tryggvason
Markaðsviðskipti Landsbankans
Netfang: gunnar.s.tryggvason@landsbankinn.is     
Sími: 410-6709

Viðhengi



Skilmalar - RVKNG 40 1.pdf