Icelandic
Birt: 2020-12-03 12:22:10 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Útboð á víxlum 8. desember 2020

Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á víxlum þriðjudaginn 8. desember 2020. Boðnir verða til sölu víxlar í tveimur nýjum flokkum, 6 mánaða flokknum LYKILL210615 og 12 mánaða flokknum LYKILL211215.

Markaðsviðskipti Arion Banka hf. hafa umsjón með útboðinu og kynna það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 1 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða, og er þátttaka í útboðinu aðeins heimil aðilum sem flokkast sem fagfjárfestar skv. 9. tl.  2. greinar laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. a-lið, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins  (ESB) nr. 2017/1129 frá 4. júní 2017 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði,  sbr. 2. gr. laga nr. 14/2020 um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Skila skal inn tilboðum á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 8. desember. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 15. desember 2020.

Nánari upplýsingar veita:

Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is s: 444 6910

Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 540 1700