Icelandic
Birt: 2020-11-26 10:25:36 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum LYKILL 23 11

Í dag, 26. nóvember 2020 lauk Lykill fjármögnun hf. stækkun á almenna skuldabréfaflokknum LYKILL 23 11.

Flokkurinn er 3 ára vaxtagreiðslubréf með lokagjalddaga þann 28. nóvember 2023 sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,1% vaxtaálags. Þann 18. nóvember síðastliðinn birti Lykill tilkynningu þess efnis að félagið hefði lokið sölu á 1.000m kr. að nafnverði í flokknum. Gefin eru nú út til viðbótar skuldabréf að nafnvirði 810m.kr. og voru skuldabréfin seld á genginu 99,4.

Skuldabréfunum fylgir innlausnarheimild sem fjárfestar geta nýtt sér hvenær sem er á líftíma bréfsins og fer framkvæmd innlausnar fram á næsta vaxtagjalddaga 9 mánuðum eftir að tilkynnt er um innlausn.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 27. nóvember 2020. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:

Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 444 6910

Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 515 2000