Icelandic
Birt: 2020-11-25 17:21:30 CET
Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I
Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Birting lýsingar fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I

Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I, kt. 651116-9960, Borgartúni 33, 105 Reykjavík, Íslandi, hefur birt lýsingu sem samanstendur af verðbréfalýsingu dagsettri 25. nóvember 2020 og útgefandalýsingu dagsettri 25. nóvember 2020 (saman nefnt lýsingin). Lýsingin, sem staðfest hefur verið af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, er birt í tengslum við umsókn um töku skuldabréfaflokksins BUS 60 til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.

Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Landsbréfa hf., rekstrarfélags Landsbréfa BÚS - I, www.landsbref.is/skrad-skuldabref. Fjárfestar geta einnig nálgast útprentuð eintök af lýsingunni sér að kostnaðarlausu hjá Landsbréfum - BÚS I, Borgartúni 33, 105 Reykjavík.

Sótt verður um töku skuldabréfa í flokknum BUS 60 að nafnverði 4.580.000.000 íslenskra króna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Nasdaq Iceland hf. mun birta tilkynningu um töku skuldabréfanna til viðskipta og hvenær viðskipti með þau geti hafist með a.m.k. eins viðskiptadags fyrirvara.

Frekari upplýsingar má fá á skrifstofu Landsbréfa í Borgartúni 33, Reykjavík.

Viðhengi



2020-11-25-Utgefandalysing-Landsbref BUS I-LB.pdf
2020-11-25-Verbrefalysing-Landsbref BUS I-BUS 60-LB.pdf