Uppgreiðsla lánasamnings REG2 Smáralind 14. desember 2020.REG 2 Smáralind, sérhæfður sjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 14. desember 2012 út skuldabréfaflokkinn REG2SM 12 2, sem skráður er á Nasdaq OMX Iceland. Lántaki sjóðsins, Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf., hefur í dag tilkynnt sjóðnum að hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum. Uppgreiðslugjald nemur 1,0% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga. Næsti gjalddagi skuldabréfsins er 14. desember 2020 og verður flokkurinn greiddur upp þann dag. Frekari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.: s. 444 7461
|