Icelandic
Birt: 2020-11-18 19:02:26 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf. gefur út nýjan 3 ára skuldabréfaflokk

Lykill fjármögnun hf. hefur lokið sölu á nýju almennu skuldabréfi til þriggja ára sem ber auðkennið LYKILL 23 11.

Flokkurinn er 3 ára vaxtagreiðslubréf með lokagjalddaga þann 28. nóvember 2023 sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,1% vaxtaálags. Gefin eru út skuldabréf að nafnvirði 1.000 m.kr. og voru skuldabréfin seld á genginu 99,4.

Skuldabréfunum fylgir innlausnarheimild sem fjárfestar geta nýtt sér hvenær sem er á líftíma bréfsins og fer framkvæmd innlausnar fram á næsta vaxtagjalddaga 9 mánuðum eftir að tilkynnt er um innlausn.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 27. nóvember 2020. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 444 6910
Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 515 2000