Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu. Tilboð í útboðinu voru 22 talsins og námu samtals 4.340 m. kr. að nafnverði. Fjögur tilboð að fjárhæð 860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,70%-2,77%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,77%. Heildarstærð flokksins verður 38.240 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Eitt tilboð að fjárhæð 200 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,35%. Tilboðinu í flokkinn var ekki tekið. Sautján tilboð að fjárhæð 3.280 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 0,96%-1,04%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 18. nóvember 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.
|