English Icelandic
Birt: 2020-10-22 21:13:55 CEST
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf. gefur út skuldabréf til þriggja ára

Kvika hefur lokið sölu í nýjum flokki skuldabréfa með auðkennið KVB 20 01. Gefin eru út skuldabréf að nafnvirði 1.500 milljónir króna en heildartilboð í útboðinu námu 2.040 milljónum króna. Skuldabréfin eru til þriggja ára og bera fljótandi REIBOR vexti til eins mánaðar með 0,85% vaxtaálagi. Heildar útgáfuheimild í flokkinum KVB 20 01 er 5.000 milljónir króna. Skuldabréfunum fylgir innlausnarheimild sem fjárfestir getur nýtt hvenær sem er á líftíma bréfsins. Framkvæmd innlausnar fer fram með endurkaupum útgefanda á skuldabréfunum á næsta vaxtagjaldaga að átta mánuðum liðnum, frá því tilkynning um innlausn berst útgefanda.

Skuldabréfin verða skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í næstu viku.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar í síma 540-3200.