Icelandic
Birt: 2020-10-21 21:24:48 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Innherjaupplýsingar

REITIR: Niðurstöður hlutafjárútboðs

Í dag lauk hlutafjárútboði á alls 120.000.000 nýjum hlutum í Reitum fasteignafélagi hf. en hlutirnir voru boðnir fjárfestum til áskriftar á genginu 43 kr. á hvern hlut. Útboðið hófst klukkan 10 í gær 20. október og lauk í dag kl. 16. Lýsing vegna útboðsins var birt þann 9. október 2020. Arctica Finance hf. var umsjónaraðili útboðsins en Íslandsbanki var félaginu einnig til ráðgjafar.

Í útboðinu bárust áskriftir fjárfesta fyrir alls 11.813.039.464 kr. eða 274.721.849 nýjum hlutum. Í forgangsréttarhluta útboðsins bárust áskriftir fyrir samtals 10.059.157.657 kr. eða 233.933.899 hlutum og í almennum hluta útboðsins bárust áskriftir fyrir samtals 1.753.881.807 kr. eða 40.787.949 nýjum hlutum. Niðurstaðan er því rúmlega tvöföld eftirspurn eftir nýjum hlutum í útboðinu.

Í samræmi við reglur útboðsins var alls 120.000.000 nýjum hlutum úthlutað til forgangsréttarhafa en þar er um að ræða áskrift að öllum þeim nýju hlutum sem boðnir voru í útboðinu. Samkvæmt því kemur ekki til úthlutunar nýrra hluta til þeirra fjárfesta sem skráðu áskrift í almennum hluta útboðsins. 

Gert er ráð fyrir að fjárfestar geti nálgast upplýsingar um sína úthlutun fyrir lok dags 22. október með því að skrá sig inn á vef Arctica Finance: https://www.arctica.is/reitir-utbod/ með sömu auðkennum og notuð voru til áskriftarinnar. Gjalddagi áskriftarloforða fjárfesta er 28. október næstkomandi og fer afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fram að lokinni skráningu hækkunar hlutafjár hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins, áætlað eigi síðar en þann 13. nóvember nk. Gert er ráð fyrir að viðskipti með hina nýju hluti hefjist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. eigi síðar en þann 16. nóvember næstkomandi.

Guðjón Auðunsson, forstjóri:

„Það er ánægjulegt að sjá það mikla traust og þann áhuga sem fjárfestar hafa á Reitum sem niðurstaða útboðsins ber með sér. Þessi niðurstaða hvetur Reiti áfram í þá vegferð sem framundan er, til hagsbóta fyrir hluthafa félagsins, viðskiptavini og aðra hagaðila“.

Nánari upplýsingar veita:

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í síma 660 3320 og á gudjon@reitir.is

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita, í síma 669 4416 og á einar@reitir.is