Icelandic
Birt: 2020-10-21 18:46:22 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 21. október 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 23. október 2020.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 5.175.000.000 á bilinu 1,14% - 1,26%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 4.575.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,25%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 67.118.252.565 en er nú ISK 71.693.252.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 435.000.000 á bilinu 1,42% - 1,46%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 315.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,45%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 23.716.000.000 en er nú ISK 24.031.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is