English Icelandic
Birt: 2020-10-15 13:05:40 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fyrsta græna nafnvaxtaskuldabréfið á Íslandi

Orkuveita Reykjavíkur hefur í dag gefið út nýjan grænan skuldabréfaflokk með auðkennið OR231023 GB. Þetta er jafnframt fyrsti óverðtryggði græni skuldabréfaflokkur sem gefinn hefur verið út á Íslandi.

Skuldabréfin eru með vaxtagreiðslufyrirkomulagi og bera 2,8% vexti sem greiðast fjórum sinnum á ári fram að lokagjalddaga þann 23. október 2023.

Seld voru skuldabréf að fjárhæð 3.000 m.kr. að nafnvirði.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com