English Icelandic
Birt: 2020-10-13 18:06:10 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.:Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru sautján talsins og námu samtals 2.140 m. kr. að nafnverði.

Þrjú tilboð að fjárhæð 220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,40%-2,50%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sjö tilboð að fjárhæð 820 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,16%-3,20%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.100 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 0,60%-0,65%. Tilboðum að fjárhæð 960 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 0,63%. Heildarstærð flokksins verður 11.100 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 20. október 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.