Icelandic
Birt: 2020-10-05 10:55:12 CEST
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Viðskiptayfirlit september 2020 – Nasdaq Iceland

Reykjavík, föstudagur, 5. október, 2020 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir september 2020 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

  • Úrvalsvísitalan (OMXI10) lækkaði um 0,86% í september og stendur nú í 2.088 stigum.
  • Heildarviðskipti með hlutabréf í september námu 39,3 milljörðum eða 1.786 milljónum á dag. Það er 24,2% hækkun frá fyrri mánuði, en í ágúst námu viðskipti með hlutabréf 1.438 milljónum á dag. Þetta er 0,8% hækkun á milli ára (viðskipti í september 2019 námu 1.772 milljónum á dag).
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel (MAREL), 6,9 milljarðar, Arion banka (ARION), 5,7 milljarðar, Símans (SIMINN), 3,7 milljarðar, Haga (HAGA), 3,2 milljarðar og Kviku (KVIKA), 2,8 milljarðar.
  • Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf í september voru 3.546 talsins eða að jafnaði 161 á dag. Það er 33% hækkun frá fyrri mánuði, en í ágúst voru viðskipti með hlutabréf 2.668 talsins. Milli ára fjölgaði viðskiptum um 57% (í september 2019 voru viðskipti með hlutabréf 2.257 talsins).
  • Flest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 591 talsins, Marel (MAREL), 463, Arion banka (ARION), 297, Kviku (KVIKA), 254 og Símans (SIMINN), 215.  
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina í mánuðinum, 24,3%, Fossar markaðir með 19,6% og Íslandsbanki þar á eftir með 17,3%.
  • Í lok september voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North á Íslandi. Nam heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.232,8 milljörðum króna (samanborið við 1.233,3 milljarða í lok ágúst).

Skuldabréf:

  • Ávöxtunarkrafa fimm ára óverðtryggðu skuldabréfabréfavísitölunnar (OMXI5YNI) er nú 2,47% (+5 punktar), eins árs óverðtryggðu vísitölunnar (OMXI1YNI) er 1,04% (+ 2 punktar) og fimm ára verðtryggðu vísitölunnar (OMXI5YI) er -0,59% (+1 punktur).
  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 111,4 milljörðum í september sem samsvarar 5 milljarða veltu á dag. Þetta er 19,6% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í ágúst námu 6,3 milljörðum á dag) og 15,9% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í september 2019 námu 6 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 72,7 milljörðum og viðskipti með bankabréf 22,7 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 28 1115 (14,5 milljarðar), RIKB 25 0612 (14,4 milljarðar), RIKB 31 0124 (11 milljarðar), RIKB 21 0805 (7,5 milljarðar) og RIKS 26 0216 (6,9 milljarðar)
  • Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 20,2%, Arion banki með 19,1% og Kvika banki þar á eftir með 17,3%
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,2% í september og stendur nú í 1.712 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,15% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) um 0,23%.                    

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá

http://www.nasdaqomxnordic.com/news/statistics    

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI NASDAQ ICELAND
         Kristín Jóhannsdóttir
         Sími: 868 9836
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com


202009.xlsx