Orkuveita Reykjavíkur – Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfaLokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 30. september 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055. Í heildina bárust tilboð upp á 4.730 m.kr. að nafnvirði í flokkana. Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 2.430 m.kr. á bilinu 0,60% - 0,71%. Tilboðum að fjárhæð 1.850 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 0,63%. Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 2.300 m.kr. á bilinu 0,99% - 1,04%. Tilboðum að fjárhæð 1.850 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,02%. Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf. Nánari upplýsingar veita: Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com
|