English Icelandic
Birt: 2020-09-15 17:43:08 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 15 talsins og námu samtals 7.840 m. kr. að nafnverði.

Níu tilboð að fjárhæð 6.460 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,32%-2,41%. Tilboðum að fjárhæð 6.340 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,37%. Heildarstærð flokksins verður 37.380 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sex tilboð að fjárhæð 1.380 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,87%-2,94%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. september 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.