Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Heildareftirspurn í útboðinu var 6.700 m.kr. Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 27 voru samtals 1.160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,83%. Heildartilboð voru 1.840 m.kr. á bilinu 2,69% - 2,95%. Heildarstærð flokksins verður 1.160 m.kr. eftir útgáfuna. Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 3.900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,08%. Heildartilboð voru 4.860 m.kr. á bilinu -0,03% - 0,29%. Heildarstærð flokksins verður 23.760 m.kr. eftir útgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 16. september 2020. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is.
|