Icelandic
Birt: 2020-09-04 14:26:15 CEST
Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I: Stækkun skuldabréfaflokks til fjármögnunar nýrrar lánveitingar

Tilkynning til kauphallar vegna útgáfu nýs skuldabréfaflokks til fjármögnunar á nýju láni til Búseta hsf.

Í tengslum við fyrirhugaða lánveitingu til Búseta hsf. hefur fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I stækkað skuldabréfaflokkinn með auðkennið BUS 60. Skuldabréf voru seld að nafnvirði kr. 1.400.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,50%. Eftir stækkun er stærð skuldabréfaflokksins 4.580.000.000. Heildarheimild útgáfu er kr. 12.000.000.000. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður á 2,70% föstum vöxtum, til 40 ára og  með jöfnum greiðslum vaxta og höfuðstóls. Lokagjalddagi er þann 5. maí 2060. Vaxta- og höfuðstólsgreiðslur greiðast mánaðarlega, voru greiddar í fyrsta skipti 5. júní 2020. Skuldabréf í flokknum eru fyrst uppgreiðanleg 5. maí 2028 með 1,5% uppgreiðslugjaldi sem stiglækkar og fellur niður 14 árum frá útgáfudegi.

Fyrirhugað er að sækja um töku nýja skuldabréfaflokksins til viðskipta í kauphöll. Yfirlýst markmið og skilmáli  skuldabréfanna er að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta í kauphöll fyrir árslok 2020.

Skuldabréfaútgáfur Landsbréfa – BÚS I fela ekki í sér bein veð en allar eignir fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I standa til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna.

Ætlunin er að afrakstur sölu skuldabréfanna fari til nýrrar lánveitingar Landsbréfa – BÚS I til Búseta hsf. Miðað er við að lánið verði tryggt með íbúðareignum Búseta hsf. við Keilugranda í Reykjavík. Með nýrri lánveitingu er áætlað að lánshlutfall sjóðsins í heild verði nærri 64,8%.

Skjöl sem tengjast öðrum skuldabréfaflokk sjóðsins, BUS 56, má nálgast á vefsíðunni: 

 https://landsbref.is/skrad-skuldabref

Markaðir Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.