Icelandic
Birt: 2020-09-01 12:58:15 CEST
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Viðskiptayfirlit ágúst 2020 – Nasdaq Iceland

Reykjavík, þriðjudagur, 1. september, 2020 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir ágúst 2020 eru eftirfarandi:    

Hlutabréf:

  • Úrvalsvísitalan (OMXI10) hækkaði um 1,27% í ágúst og stendur nú í 2.107 stigum.
  • Heildarviðskipti með hlutabréf í ágúst námu 28,8 milljörðum eða 1.439 milljónum á dag. Það er 44% hækkun frá fyrri mánuði, en í júlí námu viðskipti með hlutabréf 1.001 milljón á dag. Þetta er hins vegar 34% lækkun á milli ára (viðskipti í ágúst 2019 námu 2.178 milljónum á dag).
  • Mest voru viðskipti með bréf Arion banka (ARION), 4 milljarðar, Símans (SIMINN), 3,1 milljarður, Marel (MAREL), 2,9 milljarðar, Festi (FESTI), 2,7 milljarðar og VÍS (VIS), 2,4 milljarðar.
  • Heildarfjöldi viðskipta með hlutabréf í ágúst voru 2.668 talsins eða að jafnaði 133 á dag. Það er 32% hækkun frá fyrri mánuði, en í júlí voru viðskipti með hlutabréf 2.021 talsins. Milli ára fjölgaði viðskiptum um 5% (í ágúst 2019 voru viðskipti með hlutabréf 2.535 talsins).
  • Flest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 466 talsins, Arion banka (ARION), 290, Marel (MAREL), 180, Símans (SIMINN), 175 og Regins (REGINN), 168.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina í mánuðinum, 21,7%, Fossar markaðir með 19,2% og Íslandsbanki þar á eftir með 18,7%.
  • Í lok ágúst voru hlutabréf 24 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North á Íslandi. Nam heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.233 milljörðum króna (samanborið við 1.225 milljarða í lok júlí).

Skuldabréf:

  • Ávöxtunarkrafa fimm ára óverðtryggðu skuldabréfabréfavísitölunnar (OMXI5YNI) er nú 2,43% (+29 punktar), eins árs óverðtryggðu vísitölunnar (OMXI1YNI) er 1,01% (+ 1 punktur) og fimm ára verðtryggðu vísitölunnar (OMXI5YI) er -0,6% (-25 punktar).
  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 126 milljörðum í ágúst sem samsvarar 6,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 133% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júlí námu 2,7 milljörðum á dag) og 50% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í ágúst 2019 námu 4,2 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 67,4 milljörðum og viðskipti með bankabréf 29,4 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 25 0612 (11,7 milljarðar), RIKB 22 1026 (11,4 milljarðar), RIKB 28 1115 (11,2 milljarðar) RIKS 26 0216 (10,8 milljarðar), og RIKB 31 0124 (9,3 milljarðar).
  • Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 22,9%, Kvika banki næstur með 18,8%, og Arion banki þar á eftir með 15,8%.
  • Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 0,09% í ágúst og stendur nú í 1.709 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,47% og á meðan sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 1,09%.       

 

          Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá

http://www.nasdaqomxnordic.com/news/statistics    

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI NASDAQ ICELAND
         Kristín Jóhannsdóttir
         Sími: 868 9836
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com


202008.xlsx