English Icelandic
Birt: 2020-07-22 17:42:20 CEST
Arion banki hf.
Innherjaupplýsingar

Arion banki: Drög að uppgjöri annars ársfjórðungs 2020 liggja fyrir – afkoma fjórðungsins jákvæð um 4,9 milljarða króna

Drög að uppgjöri Arion banka fyrir annan ársfjórðung 2020 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins 4,9 milljarðar króna og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli 10,5%. Afkoman er umtalsvert umfram það sem spár greiningaraðila gera ráð fyrir, en samandregnar spár þeirra (e. consensus) verða sem fyrr aðgengilegar á fjárfestatengslavef bankans.

Jákvæð þróun markaða á tímabilinu setur mark sitt á uppgjörið en hreinar fjármunatekjur eru jákvæðar um 2,7 milljarða króna. Niðurfærslna útlána á tímabilinu nemur tæpum einum milljarði króna, sem er veruleg lækkun frá fyrsta fjórðungi og rekstraráhrif félaga til sölu eru óveruleg á fjórðungnum.

Uppgjörið fyrir annan ársfjórðung er enn í vinnslu og gætu því framangreindar upplýsingar tekið breytingum en uppgjörið verður birt 29. júlí nk.

Rétt er að taka fram að áfram er umtalsverð óvissa í starfsumhverfi bankans og þá fyrst og fremst tengd þróun COVID-19 faraldursins og þeim áhrifum sem faraldurinn kann að hafa á íslenskt efnahagslíf. Sú óvissa snýr fyrst og fremst að þróun eignasafns bankans svo sem útlánasafns og verðbréfastöðu. Fjárhagslegur styrkur Arion banka er varðar eigið fé og lausafé er áfram mjög mikill sem auðveldar bankanum að takast á við óvenjulegar aðstæður.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760.

Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik.