English Icelandic
Birt: 2020-07-07 18:05:16 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 15 talsins og námu samtals 7.840 m. kr. að nafnverði.

Tólf tilboð að fjárhæð 7.420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,37%-2,47%. Tilboðum að fjárhæð 2.820 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,41%. Heildarstærð flokksins verður 26.640 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Þrjú tilboð að fjárhæð 420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,66%-2,70%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 14. júlí 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.