English Icelandic
Birt: 2020-06-23 20:43:28 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur: Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 23. júní 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR 020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.

Í heildina bárust tilboð upp á 4.595 m.kr. að nafnvirði í flokkana.

Heildartilboð í OR 020934 GB  voru samtals 2.405 m. kr. á bilinu 0,90% - 1,02%. Tilboðum að fjárhæð 1.415 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 0,91%. Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 2.190  m. kr. á bilinu 1,31% - 1,38%. Tilboðum að fjárhæð 1.440 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,32%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is. 

Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com