Icelandic
Birt: 2020-06-15 13:23:08 CEST
Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I: Stækkun skuldabréfaflokksins BUS 60 til fjármögnunar nýrrar lánveitingar

Tilkynning til kauphallar vegna stækkunar skuldabréfaflokksins BUS 60 til fjármögnunar á nýju láni til Búseta hsf.

Í tengslum við fyrirhugaða lánveitingu til Búseta hsf. hefur fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I stækkað skuldabréfaflokkinn með auðkennið BUS 60. Skuldabréf voru seld að nafnvirði kr. 2.300.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,73%. Eftir stækkun er stærð skuldabréfaflokksins kr. 3.180.000.000. Heildarheimild útgáfu er kr. 12.000.000.000. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður á 2,70% föstum vöxtum, til 40 ára og  með jöfnum greiðslum vaxta og höfuðstóls. Lokagjalddagi er þann 5. maí 2060. Vaxta- og höfuðstólsgreiðslur greiðast mánaðarlega og var fyrsti gjalddagi 5. júní 2020. Skuldabréf í flokknum eru fyrst uppgreiðanleg 5. maí 2028 með 1,5% uppgreiðslugjaldi sem stiglækkar og fellur niður 14 árum frá útgáfudegi.

Fyrirhugað er að sækja um töku nýja skuldabréfaflokksins til viðskipta í kauphöll fyrir árslok í samræmi við yfirlýst markmið og skilmála skuldabréfanna.

Skuldabréfaútgáfur Landsbréfa – BÚS I fela ekki í sér bein veð en allar eignir fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I standa til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna.

Ætlunin er að afrakstur sölu skuldabréfanna fari til nýrrar lánveitingar Landsbréfa – BÚS I til Búseta hsf. Miðað er við að lánið verði tryggt með íbúðareignum Búseta hsf. við Keilugranda og Bjallavað í Reykjavík og við Litlakrika í Mosfellsbæ. Lánshlutfall eigna sjóðsins miðað við fasteignamat 2020 og stöðu lána um síðustu áramót var 61,9%. Með nýrri lánveitingu og að teknu tilliti til lánveitingar í maí má reikna með að lánshlutfallið í heild verði nærri 64,5%.

Skjöl sem tengjast skuldabréfaflokknum BUS 56 má nálgast á vefsíðunni: 

https://landsbref.is/skrad-skuldabref

Markaðir Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.