Icelandic
Birt: 2020-06-11 14:10:51 CEST
Fagfjárfestasjóðurinn KLS
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Fundur skuldabréfaeigenda - KLS 13 1

Þann 20. febrúar 2013 gaf fjárfestasjóðurinn KLS, kt 700113-9810, út skuldabréf að fjárhæð kr. 5.700.000.000,-. Skuldabréfið er skráð í OMX Kauphöll Íslands undir auðkenninu KLS 13 1.

Boðað er til fundar eigenda skuldabréfaflokksins þann 19. júní kl 10:00 að Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Á fundinum verður óskað eftir afstöðu eigenda skuldabréfaflokksins til þess að sjóðurinn falli frá veðsetningu eigna eins og hún er tilgreind í útgáfulýsingu KLS 13 1 og njóti framvegis veðréttinda skv. „almenna tryggingafyrirkomulaginu“ eins og það er skilgreint í grunnlýsingu Regins til útgáfu skuldaskjala, dags. 31. mars 2020.

Í skilmálum skuldabréfaflokksins KLS 13 1 kemur fram að til að samþykkja skilmálabreytingu á skuldabréfaflokknum þarf útgefandi samþykki 90% eigenda útgefinna skuldabréfa flokksins m.v. fjárhæð.

Frekari upplýsingar, gögn og umboð vegna fundarins, má nálgast hjá Önnu Kristjánsdóttur (anna.kristjansdottir@stefnir.is) forstöðumanni skuldabréfa hjá Stefni hf.