English Icelandic
Birt: 2020-06-09 17:51:25 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 16 talsins og námu samtals 1.960 m. kr. að nafnverði.

Sex tilboð að fjárhæð 500 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,39%-2,45%. Tilboðum að fjárhæð 420 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,42%. Heildarstærð flokksins verður 23.820 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 1.460 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,75%-2,80%. Tilboðum að fjárhæð 1.400 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,78%. Heildarstærð flokksins verður 7.840 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 16. júní 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.