English Icelandic
Birt: 2020-06-04 20:58:47 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða skuldabréfa- og víxlaútboðs 4. júní 2020

Lykill fjármögnun hf. hefur lokið útboði á nýjum skuldabréfaflokki með auðkennið LYKILL 24 06 og nýjum 6 mánaða víxli LYKILL201215.

Alls bárust tilboð í skuldabréfaflokkinn LYKILL 24 06 að nafnvirði 1.570 m.kr. á genginu 100,0 og var öllum tilboðum tekið.

Alls bárust tilboð í víxilflokkinn LYKILL201215 að nafnvirði 2.860 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.732 m.kr. Víxlarnir voru seldir á 1,99% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. júní 2020. Stefnt er að töku til viðskipta á bæði víxil-og skuldabréfaflokknum á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 444 6910
Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 515 2000