English Icelandic
Birt: 2020-06-03 18:53:06 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.980 m. kr. og fjöldi tilboða var 24.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 17 tilboð að nafnvirði samtals 2.400 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 0,62-0,70%. Tilboðum að nafnvirði 1.000 m.kr. á kröfunni 0,65% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 17.080 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 580 m. kr., á ávöxtunarkröfunni 2,54 – 2,58%. Öllum tilboðum var hafnað.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 10. júní 2020.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is