English Icelandic
Birt: 2020-05-25 21:26:55 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Reikningsskil

Traustur rekstur Orkuveitu Reykjavíkur

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur gekk vel á fyrsta fjórðungi ársins, rekstrarhagnaður tímabilsins nam 5,5 milljörðum króna en vegna óhagfelldra áhrifa ytri áhrifaþátta er heildarniðurstaða reksturs tímabilsins neikvæð um 2,6 milljarða króna.  Orkuveita Reykjavíkur er vel í stakk búin til að takast á við þessa óhagfelldu áhrifaþætti, lausafjárstaða er traust en í lok fyrsta ársfjórðungs var lausafjárstaða fyrirtækisins rúmir 23 milljarðar króna.

Miklar fjárfestingar

Í takti við uppbyggingu á helstu þjónustusvæðum fyrirtækisins voru fjárfestingar með mesta móti á fyrstu þremur mánuðum ársins og námu alls 3,8 milljörðum króna.  Helstu fjárfestingar tímabilsins tengjast uppbyggingu og viðhaldi veitukerfa – vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu og rafveitu -, fjárfestingu í nýjum borholum á Hengilsvæðinu ásamt tengingum heimila í Árborg og Reykjanesbæ við Ljósleiðara Gagnaveitu Reykjavíkur.


Yfirlit stjórnenda

  2016 2017 2018 2019 2020
Fjárhæðir í milljónum króna          
Rekstrartekjur 11.336  11.822  12.263  12.643  13.265 
Rekstrarkostnaður (4.079) (4.138) (4.511) (4.717) (4.718)
           
EBITDA 7.257  7.685  7.752  7.926  8.547 
Afskriftir (2.406) (2.384) (2.287) (2.829) (3.080)
Rekstrarhagnaður (EBIT) 4.850  5.301  5.464  5.097  5.466 
           
Reiknaður tekjuskattur tímabilsins (432) (2.258) 1.028  (808) 3.462 
Afkoma tímabilsins 2.535  6.039  390  3.869  (2.647)


Lykiltölur fjármála

Fleiri lykiltölur fjármála OR-samstæðunnar eru birtar á vef Orkuveitu Reykjavíkur ásamt fjárhagslegum markmiðum sem unnið er að.

Slóðin er https://www.or.is/fjarmal/fjarmalafrettir/lykiltolur-fjarmala

Viðhengi


OR Samsta 31.3.2020.pdf