Icelandic
Birt: 2020-05-21 16:02:08 CEST
TM hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

TM - Uppgjör fyrsta ársfjórðungs

TM mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða fimmtudaginn 28. maí og býður til kynningar á afkomu félagsins sama dag kl. 16.15. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins, TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: TM.is/fjarfestar/