English Icelandic
Birt: 2020-05-07 18:56:34 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.280 m. kr. og fjöldi tilboða var 17.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 15 tilboð að nafnvirði samtals 3.120 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 0,91-1,00%. Tilboðum að nafnvirði 620 m.kr. á kröfunni 0,94% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 16.080 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 160 m. kr., á ávöxtunarkröfunni 2,78 – 2,80%. Öllum tilboðum var hafnað.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 14. maí 2020.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is