Icelandic
Birt: 2020-05-07 18:48:06 CEST
Heimstaden hf.
Reikningsskil

Heimavellir hf.: Afkoma á 1. ársfjórðungi 2020

Heimavellir hf.
Fréttatilkynning 7. maí 2020

Heimavellir: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2020

Helstu atriði:

  • EBITDA ávöxtun stendur í stað milli ára og er 4,2% á tímabilinu (2019: 4,2%)
  • EBIT framlegð lækkar frá fyrra ári og er 60,4% (2019: 62,0%)
  • Heimavellir gáfu út skráð verðtryggð skuldabréf fyrir 5.060 m.kr. á árinu á 3,0% meðalvöxtum. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta.
  • Rekstrartekjur fyrstu þrjá mánuðina námu 794 m.kr. (2019: 898 m.kr.) og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu var 479 m.kr. (2019: 539 m.kr.).
  • Bókfært virði fjárfestingareigna er 45.715 m.kr. 31. mars 2020
  • Matsbreyting fyrstu þriggja mánaða ársins er óveruleg og nemur 45 m.kr og er að mestu tilkomin vegna lægri vaxtakostnaðar við mat á virði eigna.
  • Handbært fé frá rekstri var 270 m.kr. og hækkar um 136 m.kr milli ára.
  • Eiginfjárhlutfall 31.3.2020 var 38,1%

Starfsemi og horfur
Á fyrstu mánuðum ársins hefur rekstur félagsins í megin atriðum verið í samræmi við áætlanir. Samhliða minnkandi eignasafni undanfarin misseri hefur félagið gripið til hagræðingaraðgerða sem munu skila sér á þessu ári.

Óljóst er hvaða áhrif Covid-19 faraldurinn mun hafa á rekstur og eignasafn félagsins til skemmri eða lengri tíma. Félagið býr að því að vera með dreift eignasafn og góða lausfjárstöðu. Afkoma ársins mun ráðast af því hvernig faraldurinn þróast á næstu mánuðum og áhrifum hans á íslensk efnahagslíf.

Félagið Fredensborg ICE ehf. átti í marslok 73,94% af útgefnu hlutafé félagsins. Þann 6. apríl síðastliðinn birti Fredensborg ICE ehf. yfirtökutilboð í útistandandi hlutabréf félagsins. Tilboðið gildir í 10 vikur og rennur út þann 15. júní næstkomandi. Verðið í yfirtökutilboðinu er 1,50 kr. fyrir hvern hlut í Heimavöllum hf.  Eftir uppgjör tilboðsins hyggst Fredensborg ICE ehf. afskrá hlutafé Heimavalla hf. af skipulögðum verðbréfamarkaði.

Stjórn Heimavalla hefur orðið við beiðni Fredensborg ehf. um hluthafafund. Fundur hefur verið boðaður þann 14. maí kl. 15:00. Fyrir fundinum liggja þrír dagskrárliðir. Fyrst er breyting á samþykktum félagsins sem miðar að því að fækka stjórnarmönnum úr þrjá í fimm. Næsti dagskrárliður er stjórnarkjör og að því loknu verða önnur mál tekin fyrir.

Nánari upplýsingar veitir:
Arnar Gauti Reynisson framkvæmdastjóri,
gauti@heimavellir.is s. 860 5300

Viðhengi


HV hf samandr. arshlutareikningur 31.03.2020 FINAL.pdf