English Icelandic
Birt: 2020-05-07 00:26:05 CEST
Arion banki hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Correction: Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2020. Frétt birt 2020-05-06 19:22:09 CEST

Leiðrétting: Í fylgiskjalinu Arion Bank Press release Q1 2020 var villa í töflu á blaðsíðu 6, Key performance indicators. Arðsemi af áframhaldandi starfsemi var í töflunni ranglega sögð 8,5% en rétt er að hún er neikvæð um 2,7% eins og fram kom í fyrstu málsgrein fréttarinnar.

 

Covid-19 litar afkomu Arion banka á fyrsta ársfjórðungi

Covid-19 hafði veruleg áhrif á íslenskt efnahagslíf og Arion banka síðasta mánuð fyrsta ársfjórðungs 2020. Afkoma af áframhaldandi starfsemi samstæðu Arion banka á fjórðungnum var neikvæð um sem nemur 1.282 milljónum króna og afkoma neikvæð sem nemur 2.171 milljónum króna. Arðsemi eiginfjár var neikvæð um 4.6% og neikvæð um 2.7% af áframhaldandi starfsemi. Á sama tímabili 2019 var afkoma Arion banka jákvæð sem nemur 1.018 milljónum króna og arðsemi eigin fjár var 2.1%. Það voru einkum þrír þættir sem orsökuðu neikvæða afkomu á fyrsta ársfjórðungi 2020; hreinar fjármunatekjur voru neikvæðar um 2.000 milljónir króna, einkum vegna gangvirðisbreytinga hlutabréfa vegna óhagstæðrar þróunar á mörkuðum, hrein virðisbreyting var neikvæð um 2.860 milljónir króna, aðallega vegna svartsýnni forsendna í IFRS 9 líkönum bankans, einkum ef horft er til væntrar þróunar atvinnuleysis og tilfærslu viðskiptavina í ferðamannatengdri starfsemi í þrep 2, og aflögð starfsemi, sem var neikvæð um 889 milljónir króna vegna taprekstrar Valitor og matsbreytinga í Sólbjargi og Stakksbergi, en öll dótturfélögin eru flokkuð sem eignir til sölu.

Heildareignir námu 1.188 milljörðum króna í lok mars 2020, samanborið við 1.082 milljarða króna í árslok 2019. Lausafé bankans jókst þar sem ekki varð af fyrirhugaðri 10 milljarða króna arðgreiðslu, bankinn gaf út skuldabréf undir viðbótar eiginfjárþætti 1 í febrúar og innlán jukust. Lán til viðskiptavina hækkuðu lítillega frá áramótum, aðallega húsnæðislán. Innlán jukust um 9,4% frá áramótum en bankinn hefur lagt áherslu á innlán í fjármögnun sinni. Heildar eigið fé í lok mars nam 184 milljörðum króna, samanborið við 190 milljarða króna í árslok 2019 en lækkunin er einkum tilkomin vegna áframhaldandi kaupa á eigin bréfum bankans á fyrsta ársfjórðungi 2020.

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 27,5% í lok mars 2020 en var 24,0% í árslok 2019. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 nam 22,5% í lok mars 2020, samanborið við 21,2% í árslok 2019. Eiginfjárgrunnur samstæðunnar jókst um 23,3 milljarða króna frá áramótum, einkum vegna vel heppnaðrar útgáfu á 100 milljóna dollara skuldabréfs undir viðbótar eiginfjárþætti 1 í febrúar 2020 og vegna ákvörðunar stjórnar Arion banka um að leggja til að ekki verði af fyrirhugaðri arðgreiðslu vegna ársins 2019 í ljósi Covid-19 heimsfaraldursins og tilmæla Seðlabanka Íslands þar að lútandi. Sú ákvörðun verður til þess að tillaga um 10 milljarða króna arðgreiðslu, sem lá fyrir í árslok 2019, hefur ekki lengur áhrif til lækkunar á eiginfjárgrunni samstæðunnar.

Bankinn stefnir áfram á að ná markmiðum sínum til meðallangs tíma að því gefnu að efnahagslífið jafni sig innan þess tíma.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka

„Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins 2020 markast mjög af Covid-19 heimsfaraldrinum. Afkoman á fjórðungnum er neikvæð um rúmlega tvo milljarða króna einkum vegna þátta sem tengjast Covid-19 svo sem þróunar verðbréfamarkaða og efnahagslífsins almennt. Markaðsvirði hlutabréfaeignar bankans lækkaði um rúma tvo milljarða króna, niðurfærslur lána námu um þremur milljörðum, eða um 0,38% af lánasafni bankans, og neikvæð áhrif félaga til sölu námu um einum milljarði króna. Niðurfærslur lána eru að mestu tilkomnar vegna væntinga um erfiðleika í efnahagslífinu og þar með auknum líkum á vanskilum. Lánasafn bankans er sem fyrr vel dreift á milli lána til einstaklinga og fyrirtækja, en um 91% af útlánum bankans eru tryggð með veðum, þar af 70% með veðum í fasteignum. Kjarnastarfsemi bankans þróast með nokkuð jákvæðum hætti á ársfjórðungnum borið saman við fyrsta ársfjórðung 2019 þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Til að mynda eykst vaxtamunur bankans, tekjur af kjarnastarfsemi aukast um 9% og rekstrarkostnaður dregst saman um 10%. Áhersla á grunnstoðir í rekstri bankans heldur áfram og fjárhagsleg markmið hafa ekki breyst þó mögulega sé lengra í að þau náist.

Við höfum aðstoðað viðskiptavini okkar síðustu vikur og mánuði og gert okkar besta til að hjálpa þeim að bregðast við þeim einstæðu aðstæðum sem Covid-19 hefur leitt af sér. Einstaklingar hafa fyrst og fremst óskað eftir greiðsluhléi íbúðalána og höfum við komið til móts við óskir hátt í tvö þúsund viðskiptavina um greiðsluhlé. Eru nú rúmlega 11% lána bankans til einstaklinga í greiðslufrystingu. Við höfum jafnframt lagt áherslu á að vera í góðu sambandi við forsvarsfólk fyrirtækja til að fara yfir stöðu mála og horfur og hafa fjölmörg fyrirtæki óskað eftir frystingu lána. Við höfum gert okkar besta til að koma til móts við þau og eru nú um 9% lána til fyrirtækja í frystingu. Alls hefur bankinn því fryst um 10% af lánasafni sínu.

Aðdáunarverður árangur hefur náðst í baráttu við Covid-19 veiruna hér á landi sem er á undanhaldi. Efnahagslegar afleiðingar veirunnar eru enn að koma fram og eru þær einhverjar þær harkalegustu sem við höfum séð á seinni tímum. Ef að líkum lætur þá má gera ráð fyrir að nokkuð sé í að ferðaþjónusta hér á landi taki við sér og nái fyrri hæðum með jákvæðum áhrifum fyrir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Arion banki mun áfram leggja sitt af mörkum og styðja við sína viðskiptavini. Útgáfa bankans í febrúar á skuldabréfi undir viðbótareiginfjárþætti 1 sem og ákvörðun stjórnar bankans um að falla frá endurkaupastefnu og útgreiðslu arðs  gera að verkum að eiginfjár- og lausafjárstaða bankans er óvenju sterk og 27,5% eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) hærra en nokkru sinni. Þriðjungur af eigin fé bankans, eða um 63 milljarðar króna, er umfram lögboðið lágmark og er bankinn því vel í stakk búinn til að takast á við þær aðstæður sem nú eru uppi.“

 

Vefstreymi fyrir markaðsaðila 7. maí klukkan 8:30

Vefstreymi fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 7. maí klukkan 8:30 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Eggert Teitsson aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs og Theodór Friðbertsson forstöðumaður fjárfestatengsla munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Streymið fer fram á ensku.

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.

Til að leggja fram spurningar þarf að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:

Ísland: 800 7520
Svíþjóð: 46 850 558 351
Bretland: 44 333 300 9030
Bandaríkin: 1 833 526 8396

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is eða í síma 856 6760.

Fjölmiðlum er bent á að beina fyrirspurnum til Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, haraldur.eidsson@arionbanki.is eða í síma 856 7108.

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik (MAR).

Viðhengi


Arion Bank - Consolidated Financial Statements 31 March 2020.pdf
Arion Bank Investor Presentation Q1 2020.pdf
Arion Bank Press release Q1 2020.pdf