Icelandic
Birt: 2020-04-30 15:00:00 CEST
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

Reykjavíkurborg ársreikningur 2019

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2019 var lagður fyrir borgarráð í dag 30. apríl og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn þann 5. maí næstkomandi.  

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 11.199 m.kr. en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 11.991 m.kr. Þá var rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 1.358 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 3.572 m.kr. á árinu. 

Helstu frávik frá áætlun A- og B-hluta má rekja til 3.454 m.kr. hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. auk frávika í A-hluta. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 20.414 m.kr., sem er 6.644 m.kr. lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarniðurstaða A hluta skýrist einkum af 1.451 m.kr. lægri skatttekjum en áætlun gerði ráð fyrir og að tekjur af sölu byggingarréttar voru 3.753 m.kr. undir áætlun. Þá var annar rekstrarkostnaður 2.117 m.kr. yfir áætlun. Á móti kemur að launakostnaður var 2.738 m.kr. undir áætlun og aðrar rekstrartekjur voru 1.871 m.kr. yfir áætlun.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 930 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 4.047 m.kr. 

Heildareignir samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 688.915 m.kr., heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 345.022 m.kr. og eigið fé var 343.893 m.kr. en þar af var hlutdeild meðeigenda 18.884 m.kr.  Eiginfjárhlutfall er nú 49,9% en var 49,4% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Þjóðarleikvangs ehf.

Reykjavík, 30. apríl 2020.

Nánari upplýsingar veitir
Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
halldora.karadottir@reykjavik.is

Viðhengi


Arsreikningur Reykjavikurborgar 31.12.2019.pdf
Skyrsla fjarmala- og ahttustyringarsvis me arsreikningi 2019.pdf