Icelandic
Birt: 2020-04-27 21:40:21 CEST
Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I: Útgáfa nýs skuldabréfaflokks til fjármögnunar nýrrar lánveitingar

Tilkynning til kauphallar vegna útgáfu nýs skuldabréfaflokks til fjármögnunar á nýju láni til Búseta hsf.

Í tengslum við lánveitingu til Búseta hsf. hefur fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I lokið sölu á fyrstu útgáfu nýs skuldabréfaflokks með auðkennið BUS 60. Skuldabréf voru seld að nafnvirði kr. 880.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,9%. Heildarheimild útgáfu er kr. 12.000.000.000. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður á 2,70% föstum vöxtum, til 40 ára og  með jöfnum greiðslum vaxta og höfuðstóls. Lokagjalddagi er þann 5. maí 2060. Vaxta- og höfuðstólsgreiðslur greiðast mánaðarlega, í fyrsta skipti 5. júní 2020. Skuldabréf í flokknum eru fyrst uppgreiðanleg 5. maí 2028 með 1,5% uppgreiðslugjaldi sem stiglækkar og fellur niður 14 árum frá útgáfudegi.

Fyrirhugað er að sækja um töku nýja skuldabréfaflokksins til viðskipta í kauphöll. Yfirlýst markmið og skilmáli  skuldabréfanna er að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta í kauphöll fyrir árslok 2020.

Skuldabréfaútgáfur Landsbréfa – BÚS I fela ekki í sér bein veð en allar eignir fagfjárfestasjóðsins Landsbréf- BÚS I standa til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna.

Ætlunin er að afrakstur sölu skuldabréfanna fari til nýrrar lánveitingar Landsbréfa – BÚS I til Búseta hsf. Miðað er við að lánið verði tryggt með 20 íbúðareignum Búseta hsf. við Skógarveg 16 í Reykjavík. Verðmat fasteignasala á þeim eignum er um kr. 1.101.000.000. Lánshlutfall  eigna sjóðsins miðað við fateignamat 2020 og stöðu lána um síðustu áramót var 61,9%. Með nýrri lánveitingu og miðað við verðmat nýs veðandlags má reikna með að lánshlutfallið í heild verði nærri 62,7%.

Skjöl sem tengjast skuldabréfaflokknum BUS 56 má nálgast á vefsíðunni: 

https://landsbref.is/skrad-skuldabref

Markaðir Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.