Icelandic
Birt: 2020-03-24 17:37:22 CET
Brim hf.
Boðun hluthafafundar

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 17:00.

Þar sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis, að takmarka samkomur vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar hefur verið lagt bann við því að halda fjölmennan fund. Því hafa forsendur breyst verulega frá því að aðalfundur Brims hf. var auglýstur og ekki lengur tækt að safna hluthöfum saman til fundar á einn stað. Í ljósi þess og ábendingum frá hluthöfum félagsins beinir stjórnin því til hluthafa að mæta ekki á aðalfundinn heldur kjósa fyrirfram skriflega um tillögur fundarins og fela fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd. Gert er ráð fyrir að einungis mæti á fundarstað starfsmenn fundarins, forstjóri og stjórnarformaður. 

Skrifleg kosning
Eyðublað fyrir skriflega kosningu og leiðbeiningar er að finna á heimasíðu félagsins: https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/

Skulu hluthafar senda útfyllt eyðublöð á netfangið: adalfundur@brim.is og verður tekið við þeim þar til fundurinn hefst kl. 17:00 á aðalfundardaginn.

Skriflegt umboð
Jafnframt má senda þeim sem koma til með að sitja fundinn umboð með saman hætti og greinir hér að framan. Eyðublað og leiðbeiningar um það er að finna á heimasíðu félagsins:
https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/

Frestur hluthafa til að senda félaginu umboð og skrifleg atkvæði er til kl. 17:00 á aðalfundardaginn á netfangið: adalfundur@brim.is

Fundurinn verður sendur út gegnum heimasíðu félagsins: https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/ Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Aðgangsorð inná fundinn verður sennt við móttöku atkvæðaseðils með umboði.

Nánari upplýsingar veita:
Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri í síma 858-1170 eða á netfangið ingajona@brim.is
Jón Þór Andrésson í síma 858-1030 eða á netfangið jonthor@brim.is

Reykjavík, 24. mars 2020
Stjórn Brims hf.

Viðhengi


Atkvaseill_umbo.pdf