Icelandic
Birt: 2020-03-19 18:15:48 CET
Reginn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reginn hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum REGINN280130


Í dag 19. mars 2020 lauk Reginn hf. stækkun á skuldabréfaflokknum REGINN280130. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,65% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 2.520 m.kr.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna miðvikudaginn 25. mars næstkomandi og óskað verður eftir töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna, útgáfu þeirra og töku til viðskipta.


Nánari upplýsingar veita:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262

Jóhann Sigurjónsson – Fjármálastjóri - johann@reginn.is - S: 512 8900 / 859 9800

Matei Manolescu – Fossar markaðir - matei.manolescu@fossarmarkets.com – S: 522 4008