Icelandic
Birt: 2020-03-12 14:10:06 CET
Brim hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Brim hf: Tilkynning frá Íslandsbanka vegna samnings um viðskiptavakt

Brim hefur borist tilkynning frá Íslandsbanka sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins um að bankinn muni beita heimild í samningnum sem heimilar að víkja frá skilyrðum samningsins í sérstökum aðstæðum. Bankinn mun hafa inni viðskiptavakt en víkja frá skilyrðum hvað varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Nánari upplýsingar veitir: Inga Jóna Friðgeirsdóttir fjármálastjóri, s. 858 1170.