Icelandic
Birt: 2020-03-10 17:36:39 CET
Landfestar ehf.
Ársreikningur

Landfestar ehf.: Ársreikningur Landfesta ehf. 2019

  • Rekstrartekjur ársins námu 2.934 m.kr. (2018: 2.910 m.kr.).
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir 2019 nam 1.775 m.kr. (2018: 1.712 m.kr.).
  • Heildarhagnaður ársins 2019 nam 1.530 m.kr. (2018: 1.199 m.kr.).
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 29.929 m.kr. (2018: 27.496 m.kr.).
  • Handbært fé frá rekstri nam 1.315 m.kr. á árinu (2018: 1.206 m.kr.).
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 1.316 m.kr. á árinu (2018: 640 m.kr.).
  • Vaxtaberandi skuldir námu 16.185 m.kr. í árslok 2019 (2018: 15.983 m.kr.).
  • Eiginfjárhlutfall nam 37,0%. (2018: 36,4%).
  • Hagnaður á hlut var 0,92 kr. (2018: 0,69 kr.).

Ársreikningur Landfesta ehf. var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 10. mars 2020. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Rekstrartekjur ársins námu 2.934 m.kr. árið 2019 samanborið við 2.910 m.kr. árið 2018. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir árið 2019 nam 1.775 m.kr. samanborið við 1.712 m.kr. árið áður. Heildarhagnaður ársins 2019 nam 1.530 m.kr. en hann var 1.119 m.kr. árið 2018. Fjárfestingareignir námu 29.929 m.kr. árið 2019 samanborið við 27.496 m.kr. árið áður og eignir til eigin nota námu 3.747 m.kr. árið 2019. Handbært fé frá rekstri nam 1.315 m.kr. á árinu samanborið við 1.206 m.kr. árið 2018. Matsbreyting fjárfestingareigna nam 1.316 m.kr. en árið áður var matsbreytingin 640 m.kr. Vaxtaberandi skuldir námu 16.185 m.kr. í árslok 2019 samanborið við 15.983 m.kr. í árslok 2018. Eiginfjárhlutfall nam 37,0% samanborði við 36,4% árið áður. Hagnaður á hlut var 0,92 kr. en var 0,69 kr. árið 2018.

Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður á árinu 2020 vegna ársins 2019.

Fasteignirnar við Pósthússtræti 2 sem hýsa Hótel 1919 eru flokkaðar sem eignir til eigin nota þar sem í fasteignunum er annar rekstur en útleiga fasteigna og reksturinn er í eigu dótturfélags Landfesta. Eignir samstæðunnar til eigin nota námu 3.747 m.kr. árið 2019 og eru eignirnar við Pósthússtræti 2 einu eignir samstæðunnar til eigin nota.

Landfestar er eitt af þremur dótturfélögum í samstæðu Eikar fasteignafélags hf. Fasteignir félagsins eru um 35 talsins, telja um tæpa 105 þús. útleigufermetra, leigueiningar eru tæplega 170 og fjöldi leigutaka er yfir 100. Helstu fasteignir félagsins eru Pósthússtræti 2, Borgartún 21, 21a og 26 og Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær).

Landfestar ehf. gaf út skuldabréfaflokkinn LF 14 1 í júní 2014. Í desember 2014 var skuldabréfaflokkurinn skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Staðfesting endurskoðanda á útreikningum útgefanda LF 14 1 á skilmálum skuldabréfaflokksins eru meðfylgjandi tilkynningu þessari. Samkvæmt staðfestingu endurskoðanda stóðust allir skilmálar skuldabréfaflokksins LF 14 1 miðað við dagsetninguna 31.12.2019.

Fjárhagsdagatal 2020

Hálfs árs uppgjör Landfesta ehf. 2020 verður birt í viku 35, 2020.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820 8980

Viðhengi


31.12.2019 Arsreikningur Landfesta.pdf
31.12.2019 Stafesting a fjarhagslegum skilyrum.pdf