English Icelandic
Birt: 2020-03-10 17:17:47 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 22 talsins og námu samtals 4.160 m. kr. að nafnverði.

Fjögur tilboð að fjárhæð 460 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,40%-3,42%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Tólf tilboð að fjárhæð 2.400 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,39%-3,49%. Tilboðum að fjárhæð 2.060 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,44%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m.kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 3.020 m. kr.

Sex tilboð að fjárhæð 1.300 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,02%-1,10%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,10%. Heildarstærð flokksins verður 7.140 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 17. mars 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.