English Icelandic
Birt: 2020-03-04 18:10:24 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.220 m. kr. og fjöldi tilboða var 9.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 1.020 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,09-1,14%. Tilboðum að nafnvirði 840 m.kr. á kröfunni 1,10% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 15.460 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 200 m. kr., á ávöxtunarkröfunni 3,58. Öllum tilboðum var hafnað.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 11. mars 2020.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760