Icelandic
Birt: 2020-02-28 12:57:15 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150529

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150529. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 2,50% fasta ársvexti og er með lokagjalddaga árið 2029 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500.000.000 króna á ávöxtunarkröfunni 2,55% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 10.438.911.510 krónur.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna föstudaginn 6. mars nk. og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna, útgáfu þeirra og töku til viðskipta.

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669-4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími: 522-4008.