Icelandic
Birt: 2020-02-19 17:37:04 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga gefur út græn skuldabréf

Lánasjóður sveitarfélaga lauk í dag, 19 febrúar 2020, lokuðu útboði á nýjum grænum skuldabréfum í flokknum LSS040440 GB.

Skuldabréfaflokkurinn LSS040440 GB er verðtryggður til 20 ára, með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta á sex mánaða fresti og 1,50% föstum ársvöxtum.

Útboðið var með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekin var í hverju flokki.

Alls bárust 32 tilboð í skuldabréfaflokkinn LSS040440 GB að nafnvirði 3.990 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,30% - 1,69%. Tilboðum að fjárhæð 1.100 milljónum króna var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,35%. Heildarstærð flokksins verður 1.100 milljónir króna að nafnvirði eftir útgáfuna.

Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til að fjármagna verkefni sveitarfélaga sem stuðla að umhverfisvernd og sporna gegn loftlagsbreytingum.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 26. febrúar 2020. Útgefandi mun óska eftir töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland Sustainable Bond markaðnum sama dag.

Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:

Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, í síma 515-4948 eða ottar@lanasjodur.is

Gunnar S. Tryggvason, Verðbréfamiðlun Landsbankans, í síma 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is