English Icelandic
Birt: 2020-02-12 16:54:04 CET
Íslandsbanki hf.
Ársreikningur

Islandsbanki hf.: Ársuppgjör 2019

Helstu atriði í afkomu Íslandsbanka á árinu 2019

  • Hagnaður eftir skatta nam 8,5 ma. kr. (2018: 10,6 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár var 4,8% á ársgrundvelli. (2018: 6,1%).
  • Hagnaður af reglulegri starfsemi var 10,5 ma. kr.  (2018:  12,0 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 16% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 6,6% á ársgrundvelli (2018: 8,0%). Það er undir markmiði bankans um langtíma arðsemi en ásættanlegt í ljósi aðstæðna í efnahagslífinu. Arðsemismarkmið bankans fyrir reglulega starfsemi er eftir sem áður áhættulausir vextir að viðbættum 4-6%. Miðað við meðaltal áhættulausra vaxta á árinu 2019 var viðmiðið 7,7–9,7%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 33,7 ma. kr. (2018: 31,9 ma. kr.) sem er 5,4% hækkun milli ára og var vaxtamunur 2,8% (2018: 2,9%).
  • Hreinar þóknanatekjur voru 13,4 ma. kr. (2018: 12,2 ma. kr.) sem er 9,3% hækkun frá 2018.
  • Virðisbreyting útlána var neikvæð um 3.663 m.kr. á tímabilinu samanborið við jákvæða virðisbreytingu um  1.584 m.kr. á 2018.
  • Stjórnunarkostnaður jókst um 1,7% milli ára og nam 28,1 ma. kr. (2018: 27,7 ma. kr.). Hækkunin stafar af launakostnaði vegna starfsloka sem áttu sér stað á árinu 2019 og aukinna afskrifta vegna grunnkerfa.
  • Kostnaðarhlutfall samstæðu á tímabilinu var 62,4% samanborið við 66,3% á sama tímabili 2018, en kostnaðarhlutfall móðurfélags var 57,1% samanborið við 60,4% á árinu 2018. Helstu kostnaðarliðir sem voru umfram áætlanir var tap á fjárfestingareignum og kostnaður vegna starfsloka.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 6,3% á tímabilinu og voru 900 ma. kr. í lok árs 2019. Ný útlán voru 226 ma. kr. á árinu samanborið við 239 ma. kr. á árinu 2018.
  • Innlán frá viðskiptavinum námu 618,3 ma. kr.  í lok árs 2019 sem er 6,8% aukning frá 2018.
  • Lausafjárstaða bankans er sterk, bæði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum, og umfram kröfur eftirlitsaðila sem og innri viðmið.  Eiginfjárhlutföll eru sterk en ívið hærri en langtímamarkmið bankans.
  • Vogunarhlutfall var 14,2% við árslok samanborið við 14,6% við lok árs 2018, sem telst hóflegt bæði í innlendum og erlendum samanburði.
  • Stjórn bankans leggur til að 4,2 ma. kr. af hagnaði ársins 2019 verði greiddir í arð til hluthafa. Greiðslan samsvarar um 50% af hagnaði ársins 2019 og er í samræmi við markmið bankans um 40-50% arðgreiðsluhlutfall.
  • Bankinn birtir árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu á sama tíma og ársreikning fyrir árið 2019. Hægt er að nálgast gögnin hér: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl

Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs

  • Hagnaður eftir skatta var 1,7 ma. kr. (4F18: 1,4 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár 3,7% á ársgrundvelli (4F18: 3,2%).
  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 1,8 ma. kr. (4F18: 2,1 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 16% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) 4,6% (4F18: 5,3%).
  • Hreinar vaxtatekjur voru 8,5 ma. kr. (4F18: 8,3 ma. kr.) og var vaxtamunur 2,8% (4F18: 3%).
  • Hreinar þóknanatekjur voru 3,6 ma. kr. (4F18: 3,5 ma. kr.).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

Á árinu 2019 endurmátum við stefnu Íslandsbanka og skilgreindum nýtt hlutverk fyrir bankann sem „hreyfiafl til góðra verka“. Við höfum samþykkt framsýna sjálfbærnistefnu sem felur í sér að samþætta þau sjónarmið arðsemismarkmiði bankans.

Afkoma Íslandsbanka á árinu 2019 var ásættanleg og sér í lagi þegar horft er til þess að mikið hægði á hagvexti á árinu 2019. Bankinn skilaði hagnaði upp á 8,5 ma. kr. sem samsvarar 4,8% arðsemi eiginfjár sem er undir langtímaarðsemismarkmiði. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 16% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 6,6%. Tekjur bankans jukust um 7,8% á árinu og kostnaðarhlutfall bankans lækkaði í 62,4% og 57,1% fyrir móðurfélagið. Líkt og á árinu 2018 hafði rekstur eins dótturfélags neikvæð áhrif á afkomu samstæðunnar. Ný stefna Íslandsbanka og skilvirkari rekstur munu hjálpa okkur að ná þeim arðsemismarkmiðum sem við höfum sett okkur.

Vöxtur inn- og útlána á árinu var kröftugur eða 6,8% og 6,3%. Aðstæður á fjármagnsmörkuðum, hér heima sem erlendis, voru bankanum hagfelldar á árinu og var fjármögnun bankans áfram farsæl og fjölbreytt. Lausa- og eiginfjárhlutföll bankans héldust áfram sterk og voru vel yfir innri viðmiðum og kröfum eftirlitsaðila. Af þessu leiðir að Íslandsbanki mun, eftir sem áður, vera vel í stakk búinn til að veita efnahagslífinu það súrefni sem þarf til viðgangs og vaxtar.

Við vorum stærst á markaðnum í miðlun verðbréfa, eignir í stýringu jukust verulega á árinu sem og eignir í vörslu. Auk þess áttu Íslandssjóðir mjög gott ár og voru sjóðir félagsins í fyrsta sæti í ávöxtun á landsvísu í þremur flokkum af fjórum.

Við héldum áfram að fjárfesta í stafrænum lausnum á árinu 2019 og breyttum skipulagi á upplýsingatækni úr því að vera verkefnadrifið í vörumiðað skipulag. Með þessu tengjum við viðskiptasviðin betur við stafrænu vöruþróunina okkar sem verður sífellt mikilvægari fyrir reksturinn. Við kynntum til leiks fjölmargar lausnir þar á meðal nýtt app Íslandsbanka, sjálfvirkt greiðslumat og húsnæðislánaumsókn þar sem sótt er um á nokkrum mínútum.

Sem hluti af stefnumótuninni ákvað samstilltur hópur starfsmanna að styðja sérstaklega við fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: menntun fyrir alla, jafnrétti kynjanna, nýsköpun og aðgerðir í loftslagsmálum. Einnig var samþykkt á árinu að innleiða alþjóðleg viðmið um umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti inn í rekstur bankans. Með þessum stuðningi viljum við vera hreyfiafl til góðra verka.

Framundan eru spennandi en krefjandi tímar og við hlökkum til að vinna áfram í átt að nýju stefnunni í samvinnu við viðskiptavini og samstarfsaðila okkar.

Helstu atriði úr rekstri Íslandsbanka á árinu 2019

  • Ný lausn „Velkomin í hópinn“ fór í loftið í janúar. Þar geta einstaklingar stofnað til viðskipta í gegnum vefsíðu og app við Íslandsbanka á nokkrum mínútum. Einnig fór lausnin „Lán í appi“ í loftið á fyrrihluta árs. Þar geta einstaklingar fengið lán undir tveimur milljónum afgreitt á örfáum mínútum í gegnum app Íslandsbanka.
  • Aðalfundur bankans í mars 2019 samþykkti að greiða 5,3 milljarða í arð til hluthafa. Breytingar urðu í stjórn bankans þegar Tómas Már Sigurðsson var kjörinn nýr í stjórn í stað Helgu Valfells, sem óskaði ekki eftir endurkjöri.
  • Í mars hlaut bankinn viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.
  • Í júní gaf bankinn út víkjandi skuldabréf að fjárhæð 500 m. sænskra króna til 10 ára með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár (10NC5). Þetta var þriðja víkjandi skuldabréfaútgáfa Íslandsbanka. Með þessari útgáfu náði bankinn markmiði sínu um útgáfu á Tier 2 skuldabréfum og var þetta mikilvægur áfangi í uppbyggingu á langtíma eiginfjár samsetningu bankans.
  • Riaan Dreyer var ráðinn nýr framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka í júlí og hóf störf í september.
  • Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti lánshæfismat Íslandsbanka BBB+/A2 í júlí en breytti jafnframt horfum úr stöðugum í neikvæðar.
  • Í ágúst funduðu Samtök norrænna forstjóra um sjálfbæra framtíð í Reykjavík með forsætisráðherrum Norðurlanda þar sem rætt var um sameiginlegar áskoranir ríkjanna um sjálfbærni. Íslandsbanki er stoltur aðili að samtökunum.
  • Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram 24. ágúst. 15 þúsund hlauparar söfnuðu 167 m.kr. til góðra málefna í þessum stærsta góðgerðaviðburði Íslands.
  • Ný sjálfvirk húsnæðislánalausn Íslandsbanka var kynnt í ágúst. Nú er hægt er að sækja um greiðslumat á vef Íslandsbanka, fá svar um greiðslugetu samstundis og sækja um húsnæðislán.
  • Í október lækkaði Fjármálaeftirlitið (hér eftir Seðlabankinn) lágmarkskröfu um heildar eigið fé Íslandsbanka úr 19,3% í 18,8%. Lækkunin er rakin til lægri áhættu í rekstri bankans.
  • Nýtt app Íslandsbanka fór í loftið í nóvember. Appið er hannað í samvinnu við viðskiptavini og hefur fengið mjög góðar viðtökur.
  • Í nóvember gaf Íslandsbanki út almennt skuldabréf að nafnvirði 3,6 milljarða íslenskra króna. Skuldabréfið ber 1 mánaða REIBOR vexti að viðbættu 90 punkta álagi.
  • Skýrslur um íslenska ferðaþjónustu, íbúðamarkaðinn, frumkvöðla og nýsköpun og íslenskan sjávarútveg litu dagsins ljós á árinu.
  • Í desember keypti bankinn til baka eigin skuldabréf, 142,7m evra af 200m evru skuldabréfi með gjalddaga í september 2020 og skuldabréf að fjárhæð 250m sænskra króna með gjalddaga í febrúar 2020.
  • Íslandsbanki var með hæstu hlutdeild heildarviðskipta í Kauphöll Íslands með yfir 700 milljarða í markaðsvirði á árinu 2019.

Fjárfestatengsl

Símafundur með markaðsaðilum á ensku kl. 9.30
Símafundur með markaðsaðilum vegna uppgjörs verður haldinn 13. febrúar kl. 9.30. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Fundurinn verður á ensku.
Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir fundinn.

Afkomufundur á íslensku kl. 10.30
Afkomufundur með innlendum markaðsaðilum verður haldinn 13. febrúar, kl. 10.30 í höfuðstöðvum Íslandsbanka að Hagasmára 3, 201 Kópavogi á 9. hæð. Fundurinn verður á íslensku.
Vinsamlegast skráið ykkur á afkomufundinn með pósti á: ir@islandsbanki.is

Öll gögn tengd uppgjöri ásamt upplýsingum um fjárhagsdagatal og þögul tímabil má finna hér: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl – Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, margretlhr@islandsbanki.is  

Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is 

 

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.036 ma. kr. (8,3 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu, Kreditkort og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2017 af tímaritinu The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. www.islandsbanki.is  

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis  að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.

 

Viðhengi


2020.02.12_12M_results_Islandsbanki_investor_presentation_FINAL.pdf
2020.02.12 frettatilkynning a islensku_2019_FINAL.pdf
Factsheet 2019_IS.pdf
Islandsbanki_2019_Financial Factbook_FINAL.pdf
Islandsbanki hf. arsreikningur samstu 2019.pdf