Icelandic
Birt: 2020-02-06 12:48:39 CET
Félagsbústaðir hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Félagsbústaðir hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum FB100366 SB

Félagsbústaðir hafa lokið við stækkun á félagslega skuldabréfaflokknum FB100366 SB. Gefin voru út skuldabréf að nafnverði kr. 3.500 milljónir og seld á ávöxtunarkröfunni 1,85%. Heildarstærð flokksins verður 9.900 milljónir króna að nafnvirði eftir stækkunina.

Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður til 47 ára og ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu félagslegu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar:

Sigrún Árnadóttir
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða
Sími: 520 1500
sigrun@felagsbustadir.is

Daði Kristjánsson
Fossar markaðir hf.
Sími: 840 4145
dadi.kristjansson@fossarmarkets.com