Icelandic
Birt: 2020-02-06 09:47:54 CET
TM hf.
Ársreikningur

TM - Birting ársuppgjörs 2019

TM mun birta uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársins 2019 eftir lokun markaða fimmtudaginn 13. febrúar og býður til kynningar á afkomu félagsins sama dag kl. 16.00. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.

Ársreikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins, TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: TM.is/fjarfestar/