English Icelandic
Birt: 2020-02-05 18:57:09 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.420 m. kr. og fjöldi tilboða var 28.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 14 tilboð að nafnvirði samtals 2.360 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,38-1,47%. Tilboðum að nafnvirði 1.660 m.kr. á kröfunni 1,44% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 14.620 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 14 tilboð að nafnvirði samtals 2.060 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 3,60-3,72%.  Tilboðum að nafnvirði 940 m.kr. á kröfunni 3,66% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 20.180 m.kr eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 12. febrúar 2020.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760