Icelandic
Birt: 2020-01-20 10:28:06 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKN 35 1

Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2020, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1  miðvikudaginn 22. janúar. Heimild til lántöku á árinu 2020 er 6.000 m.kr. Engin lán hafa verið tekin það sem af er ári og er því ónýtt heimild 6.000 m.kr.

RVK 32 1 ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 4.920 m.kr. að nafnvirði.

RVKN 35 1 ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 26. mars 2035. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 8.230 m.kr. að nafnvirði.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákvarða fjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 28. janúar.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu og kynna það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Fjárfestar skulu skila inn tilboðum fyrir klukkan 16:00 miðvikudaginn 22. janúar 2020 á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is   

Nánari upplýsingar gefur:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272

Gunnar S. Tryggvason
Markaðsviðskipti Landsbankans
Netfang: gunnar.s.tryggvason@landsbankinn.is     
Sími: 410-6709